5.6.2010 | 22:57
Skiljanlegt
Segjum að við Reykvíkingar séum í stríði við Kjalarnes og nágrenni. Stjórnin sem ríkir á Kjalarnesi eru hryðjuverkamenn, hafa orðið mögum að bana með hryðjuverkaárásum á Reykjavík og hvetja aðra landsmenn til að stunda slík ódæði. Sem Reykvíkingur, er mér sama þó skip fá að sigla til og frá Kjalarnesi eins og engin sé morgundagurinn?
Auðvitað yrði ég fylgjandi því að haft yrði eftirlit með öllum skipaflutningum (og úr lofti).
Ég skil vel ákvörðun Ísraelsmanna ef ég reyni að setja mig í þeirra spor.
|
Ísraelsher stöðvar hjálparskip |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |

Athugasemdir
Hvernig væri þá að þú settir þig líka í spor Palestínumanna, sem hafa þurft að þola áratuga grimmilegt hernám Ísraela? Hvernig væri að þú settir inn í þessa sögu hjá þér öll fjöldamorð Ísraela á Palestínumönnum? Þú gætir til dæmis sett inn söguna um þá 1.200 menn, sem þeir slátruðu í árslok 2008 og ársbyrjun 2009. Hvernig væri að þú bættir inn í söguna grimmustu og blóði drifnustu hryðjuverkasamtökum Miðausturlanda, ísraelsk hernum?
Ef þu lemur einhvrn nógu oft og nógu illa þá endar með því að hann lemur á móti hversu friðsamur, sem hann er. Þetta er í stuttu máli skýringin á orsökum hryðjuverkaárása Palestínumanna þó það réttlæti þær að sjálfsögðu ekki. Það er heldur ekki til nein réttlæting á fjöldamorðum Ísraela eða ólöglegu hernámi þeirra yfir höfuð.
Það er eitt að hafa eftirlit með vopnaflutningum og annað að loka eina og hálfa milljón manna inni í stóru fangelsi og koma í veg fyrir að þeir fái nauðsynjavörur til að geta lifað eðlilegu lífi. Ísraelar hleypa reyndar þó nokkru mangi af nauðsynjavörum inn á Gasa enb engan veginn nægu magni fyrir eina og hálfa milljón manna. Þeir hafa til dæmis ekki heimilað nema litlu magni af byggingarefni til að gera við eða smíða ný hús í stað þeirra, sem þeir rústuðu í árás sinni fyrir einu og hálfu ári. Fólk þarf því að hafast við í hálfhrundum húsum, börnin að læra í hálfhrundum skólum ef þau þá yfir höfuð geta farið í einhvern skóla, sem er uppistandandi að einhverju leyti.
Þessi einangrun Ísraela á Gasa er einfaldlega glæpur gegn mannkyni enda fer hún langt út fyrir það að geta talist vörn gegn hryðjuverkm. Hvað það varðar að nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir að hryðjuverkamenn fái vopn til árásar þá er ég alveg sammála því að það er nauðsynlegt og í því efni er mikilvægast að koma í veg fyrir að Ísraelar fái vopn fyrir sín hryðjuverkasamtök, ísraelska herinn. Meðan ísraelski herinn er hins vegar vel vopnaður þá r nauðsynlegt að Palestínumenn fái vopn til að geta varist þeim. Þá er ég ekki að tala um vopn, sem geta nýst til árása á Ísrael heldur vopn, sem hægt er að nota til að granda skriðdrekum og einig vopn, sem geta grandað árásarþyrlum og orustuþotum Ísraela. Það er ekkert, sem réttlætir það að Palestínumönnum sé meinað um slík vopn. Það gengur ekki að hafa þá varnarlausa gagnvart jafn grimmum hrottum og Ísraelar eru.
Sigurður M Grétarsson, 6.6.2010 kl. 10:03
Hvað eiga Ísraelar þá að gera? Þú gerir þér grein fyrir því að það eru hryðjuverkasamtökin Hamas sem stjórna Palestínu og Hamas hefur það efst á sinni stefnuskrá (hafði það að minnsta kosti opinberlega) að þurrka Ísrael út af landakortinu. Auk þess hafði enginn áhuga á þessu landi fyrr en gyðingum var úthlutað það í framhaldi af heimstyrjöldinni og eina ástæðan fyrir því að Arabarnir hafa áhuga á þessu landi núna er vegna þess að þeir vilja ekki hafa neina gyðinga þarna. Þetta á allt að vera múslimskt. Arabarnir eiga öll löndin þarna í kring.
Axel (IP-tala skráð) 6.6.2010 kl. 12:38
Til að byrja með þá gætu Ísraelar látið sér nægja að banna bara vopnaflutninga til Gasa. Þeir þurfa ekki að loka á að fluttar séu nauðsynjavörur til Gasa. Þeir þurfa ekki að koma í veg fyrir að venjulegar neysluvörur, sem taldar eru nauðsynlegar til að fólk geti lifað eðlilegu lífi séu fluttar til Gasa. Ísraelar hleypa svo litlu magni vara til Gasa að þar er ekki hægt að lifa eðlilegu lífi og mikill skortur er á ýmsum nauðsynjavörum svo ekki sé tala um venjulegar neysluvörur, sem þó teljast ekki til nausynjavara. Það að koma í veg fyrir flutninga á venjulegum neysluvörum til Gasa eykur ekki öryggi ísraelskra borgara á nokkurn hátt.
Þessi einangrun þar, sem einni og hálfri milljón manna er haldið í stóru fangelsi og neitað um flestar þær vörur, sem þarf til að geta lifað eðlilegu lifi er ekkert annað en leið Ísraela til að berja fólið á Gasa til hlýðni þannig að það kjósi aðre en Hamas í næstu kosningum. Fólkið er kvalið miskunarlaust og gert það skilnanlegt að ef það losar sig ekki við Hamas þá verði það kvalið áfram. Eina leiðin til að losna undan kúguninni sé að kjósa einhverja aðra en Hamas í næstu kosningum.
Hvað næsta skref varða þá eiga Ísraelar að hætta að gefa fólki tilefni til að hata þá. Meðan þeir halda milljónum manna í ólöglegu hernámi og standi fyrir stórfeldu ráni á landi Palestínumanna og meðhöndla þá með þeirri villimannslegu grimmd, sem þeir hafa gert í marga áratugi þá verður afleiðingin af því að sjálfsögðu sú að þeir verða hataðir.
Ef þú lemur mann nógu illa og nógu oft þá endar með því að hann lemur á móti hversu friðsamur, sem hann er. Þetta er í stuttu máli lýsing á orsök hryðjuverka Palestinumanna.
Arabar og þeirra forfeður hafa búið í þessu landi í þúsundir ára. Þeri gygðngar, sem settust þarna að hafa þurft að hrekja araba á brott til að koma sér fyrir. Þeir komi sér ekki fyrir í auðu landi þó vissulega hafi ekki hver einasti blettur verið byggður þegar þeir komu. Þeir byrjuðu á því við stofnun síns ríkis að hrekja rúmlega 700 þúsund araba á brott og sköpuðu þannig stærsta flóttamannavandamál veraldar. Eftir það jöfnuðu þeir í kringum 400 arabíska bæji og þorp við jörðu til að fá land arabanna, sem þeir hröktu á brott til eigin nota. Þeir hafa svo haldið áfram að hrekja araba á brott til að geta byggt landránsbyggðir sínar. Er það að furða þó arabar vilji ekki hafa þessa landránsmenn á landi sínu.
Arabarnir eiga ekki bara öll löndin þarna í kring. Þeir eiga líka þetta land þó Ísraelar haldi því núna um stundir með ólöglegu hernámi sínu. Það eina, sem Ísrelar geta með rétti gert tilkall til samkvæmt alþjóðalögum og alþjóðasamþykktum er það land, sem Sameinuðu þjóðirnar úthlutuðu þeim árið 1947. Þó vissulega hafi Sameinuðu þjóðirnar ekki haft neinn siðferðilegan rétt til að taka land af aröbum til að úthluta til gyðinga þá stenst það þó væntanlega alþjóðalög. Þetta svæði er rétt rúmur helmingur þess lands, sem Ísraelar ráða yfir í dag. Það virðist ekkert fararsnið vera á Ísraelum frá stolnu landi og á því þarf alþjóðasamfélagið að taka. Aðgerðaleysi alþjóðasamfélagsins vegna framgangs Ísraela er ljótur blettur á alþjóðasamfélaginu.
Sigurður M Grétarsson, 6.6.2010 kl. 16:27
Sigurður þetta væri ekki svona mikið vesen ef Hamas væru ekki með völdinn en öllum múslímum er kennt að hata gyðina og auðvitað vinnur sú stjórn sem hefur það á sinni stefnuskrá að útríma öllum gyðingum en það er verst að þeir séu að reyna á þjóð sem hefur einn öflugasta her á jörðinni og þeir eru hissa að þeir bíta til baka þegar þeir eru að skjóta fleiri þúsundum flugskotum á ári þegar þetta var verst til Israel.
Ástæða fyrir innrásinni var vegna þess að þeir fengu nó af þessum hryðjaverkaárásum. BNA sprengdu heilt land þegar þessi múslímar sprengdu niður 2 byggingar ekki eru þið grenjandi undan því.
En hef tekið eftir þér Sigurðu þú ert greinilega Hamas tík.
jihad (IP-tala skráð) 6.6.2010 kl. 22:46
Jihad. Þetta væri ekki svona mikið vesen ef Ísralar væru ekki alltaf að ræna meira og meira landi af Palestínumönnum og væru ekki að fara eins illa með þá og þeir hafa gert í marga áratugi. Það er framferðið Ísraela, sem er orsök átakanna þarna og er ordsök allra hryðjuverka Palestínumanna þó það afsaki þau ekki.
Hamas hafa aldrei skotið neinum fluskeytum á Ísrael. Þeir hafa skotði rakettum á hluta af ólöglegu hernámssvæði Ísraela. Ef fólkið þar á erfitt með að þola það þá getur það bara farið inn fyrir lögleg landamæri síns eigin ríkis. Þetta réttlætir þó ekki að beina þessum skotum á óbreytta borgara en þessar rakettur, sem olli sáralitlu tjóni á mannvirkjum eða fólki þó þeim væri skotið þúsundum saman afsaka hins vegar engan vegin heiftarleg viðbrögð Ísraela, sem slátruðu á annað þúsund manns og aðallegar óbreyttum borgurum. Sú árás var gerð í hefndarskyni en hafði ekkert með sjálfsvörn að gera enda gerðu Ísraelar ekki merkilegar tilraunir til að uppræta Hamas heldur fóru einfaldlega inn og drápu fjölgan allan af saklausu fólki ásamt því að sprengja nánast alla innviði samfélagsins á Gasa og síðan fóru þeir bara heim. Það er enginn munur á þessari aðgerð og þeirri aðferð nasista að láta drepa ákveðinn fjölda íbúa hernámssvæða sinna fyrir hvern þýskn hermann, sem andspyrnumenn drápu.
Við, sem höfum verið að gagnrýna Ísrael höfum nú ekki verið grenjandi en allavega ég hef gagnrýnt innrás Bandaríkjamanna í bæði Írak og Afganistan.
Ekki veit ég nú hvað orðin "Hamas tík" eiga að standa fyrir en ég er ekki félagi í Hamas og hef aldrei stutt hryðjuverkaarm þeirra samtaka.
Sigurður M Grétarsson, 6.6.2010 kl. 23:47
Það er voðalega erfitt að fylgjast með innihaldi skipa úr fjarlægð. Þeir geta ekki sleppt skipunum í gegn án þess að athuga hvort um sé að ræða vopn, frekar en nauðsynjavörur.
Auk þess ætla Ísraelsmenn að koma hjálpargögnunum til palestínumanna, eins og þeir sögðu allan tíman.
Pétur Haukur Jóhannesson, 7.6.2010 kl. 20:32
Pétur. Eingangrun Ísrela á Gasa snýst um miklu meira en að koma í veg fyrir vpnasendingar. Þeir hafa vísvitandi skammtað mun minna af hjálpargögnum til Gasa heldur en nauðsynegt er til að fólkið þar geti lifað eðlilegu lífi. Mikilvæg hjálpargögn eins og lyfi og tæki til lækningar víða í vörugeymslum vegna þess að Ísraelar neita að heimila flutning þess inn á Gasa.
Þetta hefur ekert með sjálfsvörn Ísraela að gera heldur er vísvitandi verið að gera líf almennings á Gasa að helvíti á jörð til að refsa þeim fyrir að styðja Hamas til valda. Bara svona til að fólk hugsi sig um tvisvar næst þegar kosið verður áður en atkvæði verða greidd Hamas. Einnig gera þeir sér sennilega vonir um að íbúar Gasa losi sig við Hamas til að losna undan þessari einangrum.
Þessi taktík í hernaði kallast "hóprefsingar" eða "collectiv punishment" á ensku og flokkast til alvarlegustu stíðsglæpa.
Það að hleypa hjálpargögnunum úr þessum fáu skipum inn á Gasa er aðeins áróðursbragð Ísraela. Þeir hafa ekki aukið heimildir til flutninga á hjálpargögnum til Gasa eftir öðrum leiðum.
Sigurður M Grétarsson, 9.6.2010 kl. 14:34
Sigurður. Það að varna því að saklausir Palesínumenn fái ekki nægilega mikið af hjálpargögnum er auðvitað mjög slæmt. Þarna á að vera alþjóðlegt eftirlit (væntanlega á vegum SÞ) með öllum hjálpargögnum, í samráði við Ísraelsríki. Um það mál þurfa allir að koma að samningaborðinu.
En það þýðir ekki að ég geti tekið næsta skip og ætlast til þess að komast inn til Gasa óáreittur með samlokur og sprautunálar. Ég veit betur, eins og flestir ættu að gera. Ég kæmist ekki nálægt ströndinni. Af hverju? Jú, þarna ríkir stríð.
Ég gæti aldrei horft framhjá því að skip gætu siglt óáreitt til Gasa, ef ég væri Ísraelskur ríkisborgari. Um það snýst málið og þessvegna skil ég þeirra ákvörðun, um að stöðva skipin, mjög vel.
Að leyfa skipum að sigla óhindrað að Gasa án nokkurs eftirlits getur orðið algjör hörmung fyrir Ísraelska borgara. Menn þurfa líka að átta sig á því.
Pétur Haukur Jóhannesson, 9.6.2010 kl. 16:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.